|
Á þessari síðu upplýsi ég notendur um helstu atriði vefsins og legg fram tillögur um hvernig best er að nota hann.
Hvernig er best að nota vefinn?
Fyrst þú ert hingað komin(n) - geri ég ráð fyrir að þú sérst byrjandi eða þarft að sækja hingað þekkingu sem þig hefur hingað til vantað. Vefurinn er byggður upp sem sjálfsnáms efni - en auðvitað er hægt að nota hann samhliða námi í tónlistarskóla. Spurðu þó ávallt tónlistarkennarann ef þú ert í vafa og fylgdu þeim ráðum.
1. Til að byrja með er nauðsynlegt að útvega sér stilliforrit/tæki (tuner) og taktmæli. Ef þú átt ekki slík tæki getur þú nálgast þau sem tölvuforrit hér að ofan.
2. Byrjaðu á að lesa lauslega yfir sögu hljóðfærisins, svona rétt til að fá mynd á það hversu mikil þróun liggur á bakvið hljóðfærið.
3. Farðu síðan á tengilinn Rafbassi, og kynntu þér a.m.k. hluta rafbassans. Þar getur þú einnig fundið annað áhugavert efni, svo sem kynningu á nokkrum tegundum bassa - auk sérstakrar síðu um hið stórmerkilega ,,Stick" hljóðfæri.
4. Á Leiðsagnarsíðu getur þú síðan fundið nokkuð magn af kennsluefni. Heiti æfinganna skýra sig nokkurn veginn sjálf - og með því að renna músinni yfir þau færðu nánari upplýsingar. Ég fer ekki í grafgötur með það að vefurinn gerir ráð fyrir áhuga á að læra nótur. Það er í mínum huga nauðsyn - og ekki það erfitt að slíkt ætti að fæla frá :-)
Byrjaðu á grunnatriðum. Þegar þetta er ritað eru þau þrjú. Fingraborð rafbassans og uppbygging þess - grunnatriði vinstri handar og grunnatriði hægri handar.
Afganginn af kennsluefninu ættir þú að taka í þeirri röð sem það kemur fyrir. Gættu þess að halda ekki áfram fyrr en þú skilur fullkomlega það sem um er rætt. Leitaðu frekar upplýsinga annarsstaðar eða sendu mér línu ef eitthvað er illa sett fram á vefsíðunni.
5. Notaðu æfingar af æfingarsíðu samhliða því sem þú lest yfir kennsluefnið. Ef þér finnst æfingarnar of þungar á einhverjum tímapunkti - reyndu þá að einfalda þær á einhvern hátt. Hið sama gildir ef þér finnst þær of léttar. Lestu vandlega yfir kaflann grunnatriði á æfingarsíðu, því þar færðu nánari upplýsingar um hvernig er best að æfa.
6. Samhliða því sem þú lærir nóturnar - ættir þú að vinna með 1-3 þekkt lög á nótum. Þau getur þú nálgast á síðunni lagasöfn. Ég mæli sérstaklega með að þú finnir þér lag/lög úr safninu hans Thomas Rotter, því þar getur þú séð nóturnar á Scorch formi, með stiku sem hreyfist með nótunum. Einnig getur þú hægt á spiluninni og æft þetta alveg eftir þínu höfði (sjá hér að neðan varðandi Scorch viðbótina). Sjálfur/sjálf verður þú að finna út hversu erfitt lag þér er óhætt að ná í. Ef þú ert þolinmóð(ur) að eðlisfari, ætti þér að vera óhætt að ná í sæmilega erfitt lag og dunda við það í nokkrar vikur. Ef þú ert óþolinmóð(ur), ættir þú e.t.v. að byrja á einfaldara lagi sem þú ert fljótari að ná. Mundu - að sjálfsnám krefst þess að þú sérst heiðarleg(ur) við sjálfan þig.
7. Láttu þér endilega detta í hug atriði sem ættu heima á þessari vefsíðu - prófaðu jafnvel að senda mér línu og/eða hljóðskrá með hugmynd af æfingu. E.t.v. væri þá hægt að
koma upp gagnabanka með efni frá notendum. Náðu þér einnig í tóm
nótnablöð og vertu dugleg(ur) við að skrifa niður nótur - skrifa niður
æfingar sem þú býrð til sjálf(ur) - skrifa niður stuttar bassalínur sem
þér dettur í hug. Skrifaðu bara nógu mikið af nótum, þá verður þú
fljót(ur) að ná þessu.
Hvernig nota ég Sibelius Scorch viðbótina?

Svona lítur hausinn á Sibelius skrá út (titill auðvitað
breytilegur). Hér að neðan mun ég útskýra hvern möguleika út frá þeim
númerum sem þú sérð á myndinni.
1. Þessi takki velur útgang fyrir hljóð. Ef þú ert í vandræðum með
hljóðið - það virkar illa, vitlaus hljóðfæri koma fram (á yfirleitt
alltaf að vera bassi og hugsanlega trommur) - þá borgar sig að prófa að
velja annan útgang fyrir hljóð. Forritið finnur sjálft hvað er í boði í
tölvunni.
2. Þetta kveikir á þeim möguleika að Scorch viðbótin spili fyrir þig
lagið og hreyfi um leið bendil sem sýnir þér hvar í nótunum þú ert.
3. Hér getur þú hraðað og hægt á tóndæmunum. Þessi
möguleiki er gulls ígildi, því þú getur þá valið þér örlítið flóknari
lög til að æfa og hægt á þeim eftir þörfum - nú eða hraðað á æfingum
eftir því sem þú verður betri :-)
4. Þetta er til að færa lagið milli tóntegunda. Þannig getur þú
prófað að æfa lagið í mismunandi tóngtegunum - forritið sér um að setja
inn öll réttu formerkin og hreyfa nóturnar á rétta staði.
5. Hér getur þú prentað nóturnar út. Þessi möguleiki er stundum
virkur - stundum ekki. Allt eftir því hvort höfundur vilji eða vilji
ekki bjóða upp á hann. Allar nótur á minni síðu má prenta út - en
athugaðu þó að ég gæti gleymt að virkja þann möguleika á einhverjum
stöðum, nú eða í framtíðinni. Sendu
Žetta netfang er variš gegn sjįlfvirkum spam forritum, žś veršur aš leyfa Javascript ķ vafranum žķnum til aš sjį žaš.
þá póst og minntu mig á.
Annað:
Hafir þú hugmyndir um meira efni sem ætti heima á þessari síðu - endilega sendu
Žetta netfang er variš gegn sjįlfvirkum spam forritum, žś veršur aš leyfa Javascript ķ vafranum žķnum til aš sjį žaš.
póst og láttu mig vita - það er aldrei að vita nema ég bregðist við af stakri ljúfmennsku :-)
Gangi þér vel með námið.
|