|
Höfundur Baldur McQueen Rafnsson
|
|
Fimmtudagur, 20/03 2008 |
Maður þarf eiginlega að byrja á að biðjast afsökunnar. Í fyrsta lagi fyrir að hafa gleymt að taka "Þessi síða er í uppfærslu" af fyrra svæði síðunnar....í hálft ár. Dálítið skammarlegt.
Svo hef ég auðvitað ekkert verið að standa mig í að koma síðasta hluta efnisins inn á síðuna.
Allt stendur þetta þó til bóta. Hlustið á Victor Wooten á meðan beðið er:
|
|
|
Höfundur Baldur McQueen Rafnsson
|
|
Þriðjudagur, 18/09 2007 |
Líkt og menn sjá eflaust sem heimsótt hafa vefinn áður (á annarri vefslóð), hef ég breytt töluvert um útlit vefsins, þó efnið sé að mestu leyti hið sama. Það útlit sem nú er á vefnum er til bráðabirgða, aðalamarkmiðið með breytingunni var að koma vefum inn í vefumsjónarkerfi (Joomla) sem auðveldar hugsanlegar uppfærslur og viðbætur í framtíðinni.
Ekki er ólíklegt að ég muni breyta hér reglulega og bæta við fídusum til prófunnar - og taka þá út ef mér finnst breytingarnar til hins verra. Það er vonandi að menn munu sýna mér þolinmæði hvað það varðar næstu vikur og mánuði.
Annars vona ég vefurinn komi einhverjum að gagni og hvet notendur til að senda kennsluefni/myndir og myndbönd sem þeir telja að eigi erindi á síðuna. Hér á forsíðu hef ég hugsað mér að bæta inn tenglum á hitt og þetta - t.d. YouTube myndbönd af framúrskarandi bassaleikurum (hvernig sem maður skilgreinir svo "framúrskarandi" er allt annað mál).
|
|
|